Aðalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Teljari

blehHjördís Inga Hjörleifsdóttir

jæja, ég býst nú ekki við því að neinn lesi þetta :P ég hef ekkert skrifað inná þessa síðu í svooo langan tíma. En ætla samt aðeins að láta vita af mér, ef það má Brosandi

jæja í sumar er ég að vinna hjá póstinum að bera út og svoleiðis fínerí, flokkandi og berandi út, með meiru, ég er svona að hjóla um á sætu pósthjóli, í sætri póst úlpu, eins og Guðný myndi orða það :)
Með póstvinnunni er ég svo að vinna á subway aðra hverja helgi, endilega kíkiði og heilsið uppá mig, og líka ef að þið sjáið mig, hjóla á gulu pósthjóli niður eða upp Austurveginn ( ég veit ekki hvort maður segir og ég  fer í báðar áttir)  endilega biba eða stoppa og spjalla eða e-ð, ég hef alltaf svo gaman af því. :P

Svo vil ég nefna það að Arna Lára, besta stelpa í heiminum er að fara að koma heim úr 10 mánaða dvöl í Frakklandinu hinu fagra núna 17 júlí og éééég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svooo til :D ég ætla sko að knúsa hana þangað til að það munar ótrúlega litlu að það líði yfir hana, svona knúsyfirlið, en samt ætla ég að hætta að knúsa áður en það gerist Glottandi

ég var líka að koma heim frá Danmörkinni, ég var þar ásamt pabba, mömmu og sætasta stráknum honum Friðrik Brosandi og við vorum í heimsókn hjá stebba bróður hennar mömmu og konunni hans, þau eru æði, og við gerðum ýmislegt skemmtilegt, versluðum aðeins of mikið af sumra mati Ullandi en ekki að mínu mati, ég hefði getað verslað meir, fórum í go-kart og ég tapaði ekki :P ég er ánægðust með það
svo fórum við aðeins til þýskalands, köben og svona :)
þetta var æðisleg ferð Brosandi

en ég veit nú að það eiga ekki margir eftir að lesa þetta, síðan er orðin svo gammel og dottin öllum úr minni en ég vildi bara skrifa smá, til gamans :D

-hjördísinga

smá stuldur ?Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

jæja, langt síðan síðast en, kemur seint en kemur þó Brosandi
Ég ætla að gefa mér smá leyfi til að stela aðeins hugmynd frá Kolbrúnu, hugmyndin af þessari færlsu kemur frá henni....eeen já ég ætlaa að leyfa mér það því að mig langaði alltíeinu að blogga, og þetta er innihaldið,
smá leikur, hér ætla ég að skrifa 1-2 línur úr nokkrum lögum og þið eigið að giska á hvaða lög þetta eru Brosandi game ? ....frábært Glottandi
og hér kemur það

1. I'm still here but it hasn't been easy

2. this is the last time that I'm ever gonna come here tonight

3. And I know, I know, I know part of me says let it go

4. Arm yourself because no-one else here will save you

5. Hjartað barðist um í brjósti mér, brosið fæddist vörum á

 6. But I finally know what to do I must quit, I must quit, you

 7. I am a street light shining I’m a wild light blinding bright burning off alone

8. And I'd make it right if you wanted it  I want it back more than you know

9. If that's way it is Then that's the way it is

10. Well this calls for a toast, so pour the champagne, pour the champagne

11. Thumbin’ your way to Vegas, dirty And Dreamin’ of the other side…

12. I picture your face in the back of my eyes, a fire in the attic a proof of prize

13. Start to forget how my heart gets torn when that hurt gets thrown
feelin' like I can't go on

14. Trying to make ends meet? you're a slave to money then you die

15. Light up, light up as if you have a choice

16. I cried to my daddy on the telephone how long now

17. Bones sinking like stones all that we've fall for

18. Lífið sem þú hélst þú ættir, er þoka og gruggugt vatn

19. ég elska þig svo heitt, að mig sundlar og verkjar

20. I've never knew what it was to be alone, no Cause you were always there for me

21. It's just a trip not a way to ease your pain self help...Tell another shrink the same thing

22.Why wont you tell me that  It's almost over

23. Ich liebe dich nicht, du liebst mich nicht, aha

24. I am selfish I am wrong I am right I swear I'm right Swear I knew it all along

25. Why do I rush to slow down Why do I rush to slow down everything

þetta var svona mestpartinn bara gert þannig að ég setti á shuffle á ipodinum mínum og þessi lög komu,
gangi ykkur vel

Au revoir

- Hjördís

Pæling... !Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

Sá sem að ætlar að lifa í friði í heiminum verður að vera sjónlaus, mállaus og heyrnarlaus .....


ball á föstudag?
Ég held nú það !! BrosandiGlottandi

Tjaaaahh...Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

...hvað get ég sagt, ég er ömurlegur bloggari Ullandi

Eeen ég er að fara til Danmerkur á fimmtudag, og ég hreinlega get ekki beðið Brosandi
Vildi bara koma því að Glottandi

-HjördísInga

Tjaaaahh...Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

Partý ! ...aftur :PHjördís Inga Hjörleifsdóttir

jæja þá er komið að því fyrir víst, það verður ball núna á föstudaginn, Hvíta húsið, Paparnir ! Æði Brosandi
En það sem að ég ætla að "auglýsa" hér er þetta partý sem að við ætlum að halda fyrir ballið!
það verður í Hlíðskjálf, fyrir ball,. Verðum nokkrar stelpur í sameiningu með þetta blessaða partý og ef að þú þekkir okkur, þá máttu endilega láta sjá þig Brosandi
Hva.. ætli fólk megi ekki bara mæta þegar því sýnist? eftir 20 bara. '
Jæja jú, það eru jú einhver skilyrði og þau eru bara að þekkja einhvern sem að er að hada partýið. Það þýðir ekki bara að þekkja einhvern sem að þekkir einhvern sem að þekkir einhvern sem að er fjarskyld frænka einhvers sem að þekkir okkur.. neinei Glottandi
Svo er það auðvitað það að við viljum ekkert vesen, engan móral eða neitt slíkt, það eiga bara allir að vera vinir og góðir en ef að það er einhver með stæla getur sá hinn sami hunskast á dyr því að við viljum ekki sjá neitt slíkt !
Heyrðu, frábært, held að allt sé komið til skila, ef að það er eitthvað óljóst þá er það bara að hafa samband, kommenta eða e-ð fínt Glottandi

takk fyrir mig Brosandi

-HjördísInga, partýhaldari ! Glottandi

Partý !Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

Ég var beðin um að auglýsa lítillega þetta blessaða partý sem að við töntrurnar ásamt nokkrum fleirum ætlum að halda.
Það verður fyrir ball á föstudag og ballið byrjar klukkan 22 að ég held, þannig að fyrir þann tíma, eftir 20 eða um það leyti og fyrir 22. Ég held að það sé þannig, leiðréttið mig ef að ég fer með rangt mál. Endilega kíkiði í partý og skemmtið ykkur með okkur. En þetta er staðsett í Hlíðskjálf  sem að er e-ð Sleipnis hús þarna hjá hesthúsunum , ef að þið vitið ekki hvar það er, takiði þá túristann sem að býr innra með ykkur á þetta og spurjið til vegar Glottandi
Ég hef þó heyrt að það séu smá skilyrði fyrir því að koma inn, það er að vita hverjir eru að halda þetta partý og að vita hver á afmæli þennan dag, annars getiði gleymt inngöngu Ullandi
Ef að e-ð vesen verður eða einhver með móral, þá verður viðkomandi ekki lengur velkominn og verður vísað á dyrnar hið snarasta! Höfum það á hreinu, nennum engu svona veseni, ef að þið eruð búin að ákveða að vera með móral, haldið ykkur þá heimavið.

En endilega, ef að þið þekkið okkur, kíkið þá í gott partý á föstudag í smá upphitun fyrir ball Brosandi

Ef e-ð er óljóst, þá bara kommenta

-Hjördís Inga

Ég...Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

* er þreytt
* eeelska körfubolta
* eeelska vini mína
* eeeeeeeeeelska fjölskylduna mína
* náði bóklega
* á afmæli 6. okt.
* sakna Örnu Láru
* Hlakka til að fara á ball
* er nokkuð hamingjusöm
* er skrýtin
* er að hlusta á Run með Snow Patrol
* hata æfingaakstursmerkið
* hlakka til að fá bílpróf

-HjördísInga

ÖkuskóliHjördís Inga Hjörleifsdóttir

jæjja.. fyrir svona rúmum klukkutíma, eða um 22:00, kom ég heim í fyrsta skipti síðan ég fór að heiman í morgun rétt fyrir 8. Þreytan er aðeins farin að segja til sín en ég læt það ekkert á mig fá og blogga bara hin spakasta. Brosandi
Það var náttúrulega bara skóli í dag, ein eyða og svoleiðis kósilegheit, klukkan hálf fimm var ökuskóli 2, þar sem að ég fer að eiga afmæli fer að nálgast próf og því ekki seinna vænna en að skella sér í seinni hluta þessa frábæra ökuskóla Glottandi
Klukkan 20 var þessi tími ökuskólans að syngja sitt síðasta og eftir hann skokkaði ég yfir í Iðu þar sem að tók við prógramm dagsins og hentist ég í gegnum það þar sem að hann Gaui var svo góður að leyfa mér að notast við þreksalinn, enda er ég þarna á hverjum degi og ekki getur maðurinn neitað mér um hreyfingu ..hehe Glottandi

En ég er búin að vera að böggast í þessu "bloggar.is" drasli nánast síðan ég kom heim og er fyrst að komast inní það núna, kom seint en kom þó Brosandi

morgundagurinn verður eflaust afslappaðari en þessi, þarf bara að mæta í tvær kennslustundir en vegna ýmissa athafna kemst ég líklegast ekki heim fyrr en eftir ökuskólann þann daginn. En þetta er nú ekkert mikið miðað við það sem að sumir eru að ganga í gegnum á hverjum degi og ég ætti bara að hætta að vesenast í því að það s´é mikið að gera og gera það bara Glottandi Á meðan ég hef næga orku til er ég ánægð!
En ég ætla að hætta þessu í bili

-HjördísInga, Lifðu og leyfðu öðrum að lifa !

C'est la vie!Hjördís Inga Hjörleifsdóttir

Skóladagurinn í dag var svolítið frábrugðinn öðrum dögum en það var einungis af þeim sökum að skólinn er 25 ára í dag.. ég ætla mér nú ekkert að fjalla neitt um það , þetta var bara eitthvað til að segja nokkur orð um Glottandi
En ég fékk ýmsar uppástungur í commentum í síðasta bloggi, ætla mér nú að skrifa e-ð um það
Það var t.d. það að við, ég, Dröfn, Rebekka og Sandra erum byrjaðar hjá einkaþjáfara, það er semsagt Kjartan Kárason aðstoðaþjálfari hjá FSu liðinu og ekki síður merkilegt að hann er bróðir hans Arons Glottandi  En það gengur nú bara vel enn sem komið er, enda bara búnar að vera í þessu í nokkra daga en ég ætla að láta þetta ganga vel Brosandi
einnig var stungið uppá því að ég myndi skrifa um skólann, og ég er ekki frá því að ég sé bara búin að því ..
Eeeen
Topic 3 : um Ara, Skela og Aron, pfff.. Ullandi ég veit ekki hvernig það ætti að hljóma, hef reyndar áður tileinkað Ara eina færslu, en hvað ég ætti að segja núna veit ég ekki... hmm.. bara Ari, Skeli og Aron Glottandi

jæja, rockstar supernova er í sjónvarpinu núna, ég vil svo ekki að Magni vinni þetta og held að hann eigi ekki eftir að gera. En það er bara einfaldlega út af því að hann hentar ekki í þessa hljómsveit, og er bara of góður fyrir hana. Frábært að hann sé kominn svona langt en það yrði ekkert gott ef að hann ynni. En það er bara það sem að mér finnst. Brosandi

Þetta var óótrúlega leiðinlegt blogg, reyni að koma með e-ð uppbyggilegt næst Glottandi

-HjördísInga, C'est la vie !
Síða 1 af 2